Flýtilyklar
Íslensk framleiðsla í 66 ár
Húsgagnabólstrun Ragnars Björnssonar ehf. var stofnuð 1943 og stendur því á 66 ára gömlum grunni. Fyrirtækið hefur frá
upphafi
haft að markmiði að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna ásamt því að vera í fararbroddi við þróun og framleiðslu
springdýna. Fyrirtækið er í heimssamtökunum ISPA, sem eru gæðasamtök fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu og
hönnun
á springdýnum.
Brúðarrúm
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt brúðarrúm af öllum stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum. Lengd,
breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Við ráðleggjum fólki að hafa tvær dýnur í öllum hjónarúmum, tengja dýnurnar saman með rennilásum. Mismunandi
stífleika er hægt að velja um allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið
þitt og stígur létt framúr.
Hótelrúm
Gæðarúm sem henta einstaklega vel fyrir hótel og gistiheimili
Færðu reglulega gesti ?
RUX botnar er góð lausn í gestaherbergið og sumarbústaðinn. Bekkirnir fást í öllum stærðum og lengdum allt eftir þínum óskum. Hægt er að velja um klæðninguna með sængurdúk eða áklæði.
Er pláss fyrir makann í þínu rúmi?
Þessi geysi vinsælu sælurúm eru til í stærðunum 80 cm 90 cm 100 cm 120 cm 130 cm og 140 cm.Rúmin eru með þráðlausri fjarstýringu, og eru auðstillanleg. Rúmin eru mjög fullkomin og eru með nuddi og minni fyrir hinar ýmsu stillingar og útfærslur fyrir rúmin. Hægt er að velja um nokkra stífleika á springdýnunar.
RB rúm
Dalshrauni 8
220 Hafnarfjörður
Sími 555-0397

